Guðni er ekki hættur.

Guðni er ekki hættur í pólitík! Það verður stofnaður þjóðernislokkur og það verður fólk úr öllum flokkum sem verður með Guðna í þeim flokki. Veit ekki alveg hvort Guðni leiðir hann en hann verður í forustunni. Hann hefur talið það best að hætta strax heldur en að eyða tíma í vonlaust þjark flokkssystkyna.

Það verður spennandi að fylgjast með hvað kemur út úr þessu hjá þeim félögum en það eru held ég allavega tveir MBL bloggarar sem eru í þessum hugleiðingum með Guðna.

Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti.


mbl.is Guðni segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J rokkar feitt !

Er það Steingrímur einn sem ætlar að mótmæla hástöfum Guðni er hættur og einvað er hljótt yfir mínum mönnum. Steingrímur er að sinna kalli fólksins!

Þinn tími er komin. Komdu með vantraust á ríkisstjórn. Utanþingsstjórn strax kalla til alvörusérfræðinga og svo kosningar í vor.


mbl.is Steingrímur J. krefst upplýsinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súpa og brauð.

Veitingastaðurinn Basil og Lime Klapparstíg 38 ætlar að bjóða vegferendum upp á súpu og brauð í hádeginu á laugardögum fram að jólum. Súpan verður seld í tjaldi við veitingastaðinn og kostar 500 krónur  Öll vinna og hráefni í súpuna eru gefin og rennur andvirðið  í neyðarjóð ABC barnahjálparstarfs.

Frábært framtak! Ég hvet alla sem eru á ferðinni í bænum að staldra við og fá sér heita súpu. Vegna gengislækkunar krónurnar er þörfin fyrir aðstoð mikil.

Ég hef ákveðið að bjóða 10 manns í í heita súpu, eiga góða stund með vinum og styrkja gott málefni (þetta er neyð). Södd og sæl með góðu fólki og hafandi gert einhvað gagn ætla ég að fara til friðsamra mótmæla.


Rannveig spyr, Jens Guð svarar

  Þetta er nýtt form á blogginu.  Ég varpa fram spurningu og Jens Guð svarar.  Á morgun varpar hann fram spurningu til mín á sínu bloggi,  www.jensgud.blog.is,  og ég svara í sömu bloggfærslu.

  Spurningin til Jens er þessi: 

  ISG var að að skera niður útgjöld um 20%.  Finnst þér að hún hefði getað gert betur og ef svo er í hverju helst?  Bendi á að mest af þessum sparnaði var ekki komið til framkvæmda heldur var á fjárlögum næsta árs. Einnig skipaði ISG samstarfskonu sína til margra ára sendiherra í dag.

  Jens svarar: 

  Ég hef aldrei verið sérlegur aðdáandi ISG.  Þó hélt ég hana vera mun merkilegri pólitíkus en stutt vera hennar í starfi utanríkisráðherra hefur leitt í ljós.  Hún hefur valið sér hlutverk þess sem bugtar sig og beygir og gengur með betlistaf á milli þjóða að snapa atkvæði fyrir vonlausa baráttu fyrir sæti í Öryggisráði SÞ.  Svo bláeyg og ólæs á diplómatísk samskipti að hún hélt sig vera með sætið nokkuð víst í hendi og gífurleg afföll loforða komu henni í opna skjöldu.  Hlutverk Íslands í þetta vonlausa sæti var aldrei skilgreint.  Þetta var löngun í sæti án markmiðs og gerði Ísland bara kjánalegt.  Hvort að kosningabaráttan kostaði mörg hundruð milljónir eða yfir 1000 milljónir er ekki heila málið.  Góð landkynning er afsökunin í dag.  Það var þá landkynning!

  Niðurskurður á útgjöldum utanríkisráðuneytisins eru lítið meira en sýndarmennska.  Þar þarf róttækan niðurskurð.  Það er algjörlega ástæðulaust að halda úti öllum þessa fjölda sendiráða þvers og kruss um heiminn.  Það er bara flottræfilsháttur.  Tölvusamskipti á milli landa og heimsálfa eru orðin svo einföld og auðveld í dag að hlutverk sendiráða eru að mestu óþörf.  Ekki síst þegar horft er til þess gífurlega fjármagns sem þau soga í sig í formi húsnæðiskostnaðar,  launakostnaðar og þess sem íslensk sendiráð snúast um í dag:  Kokkteilboð í útlöndum fyrir íslenska embættismenn og einskonar félagsmiðstöðvar fyrir afdankaða stjórnmálamenn.

  Fátt jákvætt get ég sagt um Valgerði Sverrisdóttur.  Hún má þó eiga það að hafa staðið gegn öflugum þrýstingi um að fjölga íslenskum sendiherrum.  Það eru vonbrigði að ISG skuli nú bæta í sendiherrastóðið með því að "aðla" vinkonu sína í þannig embætti.  Svei!

  Ég verð að bæta við að ISG er á jaðri þess að fremja landráð með því að fá Breta nú til landrýmiseftirlits í landhelgi þjóðar sem þeir hafa skilgreint sem óvinveitta hryðjuverkaþjóð.  Með tilheyrandi kostnaði og ölmusubeiðni um að Bretar taki þátt í þeim kostnaði.  Svei!    


Að snurpa sendiherra!

Gerir nú ekki mikið gagn Hr Ólafur!

En til að koma okkur að gagni ætti forseti að pakka niður og leggjast í víking og afla okkur peninga.  Hvað með alla vinina út um allan heim? Japan, Kína, Rússland, Indland og efalaus er það fleiri lönd sem þú ert í góðum tengslum.

Koma svo með fulla flugvél af peningum til baka, mikið yrðum við þakklát, og þá væri hægt að seigja að það væri gagn að forseta okkar.

 

 


mbl.is Fréttir af ummælum forseta ónákvæmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þetta trúverðugt?

Ég horfði á markaðinn með Birni Inga og Sigurði.

Ég er ekki enn farin að trúa því að Davíð stjórni öllu og þá meina ég öllu, nema kannski veðrinu. Fyrr má nú vera völdin og fyrr má nú vera lydduskapur ríkisstjórnar.

Bankamálaráðherra og Landsbankamenn hafa gefið það út að Sigurður segi ósatt. Björn Ingi hefði mátt taka Sigmar sér til fyrirmyndar í þessu viðtali, mér fannst vel farið að Sigurði. Hann þurfti litlu að svara og auðvita var flest öllu öðru um að kenna nema stjórn bankans.

Ég er enn á því að við þurfum utanþingsstjórn okkar allra bestu sérfræðinga. Davíð þú bara verður að stíga til hliðar það verður aldrei sátt um þig.

 


mbl.is Sigurður: Lenti illilega saman við Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er minn uppáhalds!

Mér hefur alltaf fundist Tryggvi Þór góður. Nú eru hagfræðingar hjá mér eins og leikarar í denn. Þá átti ég mér uppáhaldsleikara nú á ég mér uppáhalds hagfræðinga.

Gylfi Magnússon hefur alltaf komið sterkt inn hann er svo raunsær og seigir stöðuna eins og hún er. Svo er það Þórólfur Matthíasson, ég er hrifin af hugmyndinni um norsku krónuna.

En Jón Daníelsson og Gylfi Zoega finnst mér vera koma með verulega góða hluti núna í sambandi við hvernig við getum verndað fjölskylduna og haldið atvinnu gangandi. Það er ljós í myrkrinu að heyra talað í lausnum, en ekki bara hverjum er um að kenna.

Ekki það að ég vil vita hverjum er um að kenna það á að rannsaka allt frá a-z. Ég heyrði hjá innmúruðum að það væri verið að fá 15-20 efnahagsbrotaráðgjafa frá norðurlöndunum núna. Bendir það ekki til að einhverstaðar er kusk á hvítflibbum.

Burtu með spillingarliðið.

Ps. Nú ætlum við Jens Guð vinur minn að velta því upp í bloggi hvernig við viljum breyta og bæta t.d í ráðuneytum og víða. Ég mun spyrja Jens spurninga sem hann svarar í bloggfærslu hjá mér, vonandi kemur skemmtileg umræða út úr því.

 

 

 


mbl.is Tryggvi Þór: Lítið samband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar kom að því!

Að von er á einhverju vitrænu. Nú eru kallaðir fram menn sem hafa þekkingu á ástandinu eins og það er í dag. Svo er bara að vita hvort ríkisstjórnin taki tilsögn.

Ég var ánægð með forsætisráðherra í gær þegar hann sagðist ekki ætla að borga skuldir óreiðumanna, ég og börnin mín og barnabörn ætlum ekki að gera það heldur.

Við látum ekki kúa okkur, hvorki utanlands né innan.  Burt með spillinguna.


mbl.is Ræða alvarlega efnahagsstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeysk -íslenska sambandsríkið.

Færeyingar eru bestu og einlægustu vinir Íslendinga.  Þeir eru eina þjóð heims sem stöðugt styður Íslendinga í neyð án allra skilyrða.  Þeir ætlast ekki til neins í staðinn.  Vináttan er hrein og sönn.  Eftir því sem hagsæld Færeyinga hefur vaxið jafnt og þétt síðustu 15 ár verður krafan um sjálfstæði Færeyja háværari.  Um helmingur Færeyinga,  aðallega unga fólkið,  aðhyllist í dag sjálfstæði Færeyja undan dönsku krúnunni.  Slagorðið er "200% aðskilnaður" (200% loysing).    Ungu Færeyingarnir sjá fyrir sér að með sjálfstæði Færeyja muni samskiptin við Íslendinga aukast á flestum sviðum.  Við eigum að ganga til liðs við þessar hugmyndir.  Byrja strax í dag á því að undirbúa Færeysk-íslenska sambandsríkið.  Báðar þjóðirnar munu hafa gagn og gaman af því.

  Árni Johnsen talaði á alþingi í dag um að Íslendingar ættu að taka upp færeysku krónuna.  Hún er vissulega mun stöndugri en íslenska krónan.  En færeyska krónan er bundin dönsku krónunni og danska krónan er bundin evru. 


mbl.is Árni Johnsen vill færeyska krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæinn sem geymir aurinn minn

Þessi kom i pósti til mín,mér finnst hún góð.

Gæinn sem geymir aurinn minn

 

Ég finn það gegnum netið að ég kemst ekki inn

á bankareikninginn.

En ég veit að það er gæi sem geymir aurinn minn

sem gætir alls míns fjár

og er svo fjandi klár,

kann fjármál upp á hár,

býður hæstu vextina og jólagjöf hvert ár.

Ég veit hann axlar ábyrgð, en vælir ekki neitt,

fær þess vegna vel greitt.

Hendur hans svo hvítþvegnar og hárið aftursleikt.

Þó seg´í blöðunum 

frá bankagjaldþrotum

hann fullvissar mig um:

Það er engin áhætta í markaðssjóðunum.

Ég veit að þessi gæi er vel að sér og vís;

í skattaparadís

á hann eflaust fúlgur fjár ef hann kemst á hálan ís.

Því að oftast er það sá,

sem minnstan pening á,

sem skuldin endar hjá.

Fáir slökkva eldana  sem fyrstir kveikja þá.                                                   

 

Finnur Vilhjálmsson 2008

 

Pirringurinn er alsráðandi núna eftir síðustu aðgerðir Seðlabanka. Ég vil flytja til Færeyja, svei mér ef ég læt ekki verða af því.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband