Hvað skal gera til að veita samstöðu og létta lund?
27.11.2008 | 15:27
Ég finn hvernig svartsýnin hellist yfir mig, þó svo ég reyni að halda haus. Ég er samt með fulla vinnu skulda hóflega eða ekkert sem ég ræð ekki við ennþá allavega. Ef að ég væri ekki fullfrísk eða nýbúin að kaupa íbúð, með börn á framfæri þá veit ég hreint ekki hvort ég væri þess megnug að takast á við svona ósköp.
Mig langar að gera eitthvað! Ég talaði við vinkonu mína sem er fótaaðgerðarkona og svo aðra sem er hárgreiðslukona, hvort ekki væri hægt að fá húsnæði eins og eitt kvöld í viku, bjóða upp á fría þjónustu jafnvel koma með föt og eða bækur eða sem flestir gætu lagt eitthvað af mörkum.
Þetta yrði svona gefa-þiggja samvera. Endilega komið með hugmyndir og eða segið mér hvort þetta er raunhæft.
Athugasemdir
Rannveig langflestir eiga nóg með sjálfa sig í dag og eru í bullandi vandræðum en þetta er góð hugmynd ef nógu margir koma að henni.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 27.11.2008 kl. 21:27
Í Dagskránni sem gefin er út á Akureyri auglýsti tannlæknir fríar tannlækningar fyrir grunnskólabörn næstu þrjá föstudaga.
Víðir Benediktsson, 27.11.2008 kl. 21:51
Víði Það er kannski hugmynd að safna fyrirtækjum til að þjónusta börn og öryrkja einu sinni í viku.
Rannveig H, 28.11.2008 kl. 11:45
Góð hugmynd.....flottur tannlæknir á Akureyri
Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 13:05
Þetta er snilldar hugmynd og tannsi á Akureyri er til fyrirmyndar.
Sigrún Jónsdóttir, 29.11.2008 kl. 01:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.