Verður þetta mark eða skot í stöng.
6.6.2008 | 16:35
Ég veit ekki Sturla minn held að þú verðir að fá alvöru lið með þér ef þetta á að takast. Menn úr öllum stéttum segir þú, en ég segi það gengur engin flokkur í dag sem ekki hafa konur. En konur eru líka menn .
Gamall foringi sagði eitt sinn "mínir bestu menn eru konur" hafðu það í huga Sturla. Og eitt enn það er ekki nóg að mótmæla og gagnrýna, það verður að koma með lausnirnar líka og það trúverðugar.
Sturla stofnar nýjan stjórnmálaflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já það byrjar nú ekki byrlega hjá Sturlu, Ástþór peacemann forsetaþráhyggjumaður á nafnið (lýðræðisflokkurinn) og vill ekki láta það. En mér virðist nú svona á öllu í framgöngu Sturlu á trukkamótmælunum vera svolítið út í loftið eða eins og einhver sagði "ætti ég að loka alla inni í Bónus einn daginn og hleypa engum út af því ég er að mótmæla of háu matarverði"!! En talandi um að vanti konur í flokkinn er þá ekki bara ráð að fá nokkrar öflugar trukkalessur! Nei ég segi svona
Heimir (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 18:08
Þær eru nú nokkrar að keyra stóra bíla, þær verða væntanlega ekki lengi að tusk'ann til hehe
Haraldur Davíðsson, 6.6.2008 kl. 21:53
Ég er voða forvitin að vita hver stendur á bak við þennan flokk með honum Sturla,það kemur vonandi í ljós sem fyrst
Rannveig H, 6.6.2008 kl. 22:21
Ég er undrandi á að Sturla rjúki til að stofna stjórnmálaflokk. Ég tel fullvíst að vel hefði verið tekið á móti Sturlu og öðrum vörubílstjórum ef þeir hefðu bankað upp hjá FF.
Jens Guð, 10.6.2008 kl. 22:26
Sæll Jens gaman að sjá þig hér.Ég held að það verði nú ekkert úr þessu hjá honum Stulla,jamm þú seigir það í FF meinar þú þá að við þurfum meira fjör
Rannveig H, 11.6.2008 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.