Hverjum getur liðið vel í dag?

Nú er búið að skuldsetja hvern einasta Íslending upp á 5 miljónir!

Davíð og ríkistjórn fá að halda áfram.  Hvað verður næst? Ég treysti ekki þessu fólki fyrir horn. Og það er eins og að hafa Drakúla yfir Blóðbankanum að hafa Davíð áfram í Seðlabankanum.

Ég sárbæni stjórnarandstöðu að lýsa vantrausti á ríkisstjórn; bið líka Ólaf Ragnar að rjúfa þing og mynda utanþingsstjórn. Ég ákalla allt það flotta fólk sem hefur staðið fyrir mótmælum að koma okkur til hjálpar.

Er ekki komin tími til að að dusta rykið af frumvarpi Vilmundar heitins Gylfasonar, "Flokkabáknið burt"? Kjósum um fólk, kjósum fagmennsku.  Við viljum ekki meira af gjörspilltum flokksklíkum.

En munum fyrst og fremst ábyrgð okkar.  Þetta fólk er í vinnu hjá okkur og það brást alveg hrapalega.  Veitum þeim ekki áframhaldandi vinnu.

 


mbl.is Hollendingar lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Davíð, Ingbjörg,Össur, Björn o.fl. hafa aldrei skilið þetta sem svo að þau séu í vinnu hjá okkur. Í þeirra augum erum við þegnar og eigum helst að halda kjafti.

Víðir Benediktsson, 20.11.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Rannveig H

Víðir ég myndi vilja senda allt þetta lið á gamlan síðutogara á veiðar við Grænland. Túrinn mætti vera mjög langur.

Rannveig H, 20.11.2008 kl. 23:05

3 Smámynd: Skattborgari

Það sem skiptir þau mestu máli er að halda í stólana og koma í veg fyrir að vinir þeirra tapi ekki of miklu en við hin erum bara aukaatriði.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 20.11.2008 kl. 23:10

4 Smámynd: Jens Guð

  Mér þykir líka eiga ágætlega við lýsingin á því að brennuvargurinn fái að vera áfram slökkviliðsstjóri. 

  DO ber ekki einn ábyrgð á kreppunni.  Ekki einn.  Höldum því til haga.  En það er fráleitt að samþykkja hvítþvott hans á sjálfum sér.  Hann verður ekki hvítþveginn og saklaus engill þó hann geti bent á fleiri sökudólga.

  Saddam Hussein var heldur ekki einn sekur um glæpi í Írak.  Eiturefna-Ali og fleiri komu við sögu.

  DO réði og drottnaði.  Hann einkavinavæddi bankana með lofsöng um það ferli.  Á ágætu myndbandi Láru Hönnu sést hann ýmist sverja af sér þann lofsöng eða lofsyngja hann með húrrahrópum og öðrum löfsöng um útrásarvíkinga.

  DO tók í einhverjum einkasamtölum undir áhrifum gerjaðra vínberja undir þau viðvörunarorð sem síðustu ár voru sett fram af hagfræðingum innlendum sem erlendra um innistæðuleysi útrásarinnar.  Samtímis bar hann,  síðast í mai,  fram formlegan boðskap í skýrsluformi um að allt væri traust og pottþétt á þeim vígstöðvum.

  Fyrir liggur í dag að ekki stendur steinn yfir steini í því sem heyrir undir hlutverk Seðlabankans.  Látum nægja að benda á verðbólgumarkmiðin 2,5% (verðbólgan er 16%.  Leita þarf til Simbabve til að finna verra klúður).

  Fálmkennt rugl með hæstu stýrivexti á vestrænu bóli:  15,5% og síðan niður í 12% og nokkrum dögum síðar upp í 18%.

  Önnur atriði sem snúa að traustri fjármálastjórn,  gjaldeyrisforða,  stöðugum gjaldmiðli og áfram má telja:  Allt í klessu. 

  Getur einhver bent á einhvern málsmetandi hagfræðing hvar sem leitað er í heiminum sem telur Seðlabankastjórann hafa gert eitthvað rétt í stöðunni?  Nei.  Þvert á móti er íslenska hagkerfið,  hannað og útsett af DO,  aðhlátursefni út um allan heim.  Það er uppspretta ótal brandara og réttilega skilgreint það aumasta á öllum vesturlöndum.  Gjörsamlega handónýtt.  Íslenska krónan ónýtust allra vestrænna gjaldmiðla.  Þökk sé DO.  Og börn okkar og barnabörn sitja uppi með reikninginn:  5 millur á hvert nýfætt íslenskt barn.

Jens Guð, 21.11.2008 kl. 00:39

5 identicon

Gaman að heyra þig nefna Vilmund þann eldklára dreng. Með honum opnuðust allar gáttir og leyndinni og dulúðinni var eytt að miklu leiti í pólitíkinni. Blessuð sé minning hans..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 10:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ósk þín mun líklega rætast Rannveig mín, því nú hefur heyrst að stjórnarandstaðan ætli að leggja fram vantrauststillögu, jafnvel strax í dag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2008 kl. 11:05

7 Smámynd: Rannveig H

Jens: þetta er sko allt satt og rétt hjá þér.

Hallgerður Vilmundur tók á spillingarmálum og ég held að okkur væri hollt að fletta fræðunum hans upp.

Ásthildur. Já vantraust, en er hægt að verjast vantrausti eða hvernig gengur þetta fyrir sig. ISG vill ekki út þau eru tvíburasálir ISG og Davíð.

Rannveig H, 21.11.2008 kl. 11:27

8 Smámynd: Rannveig H

Skatti minn ég sá þig ekki, þú ert alltaf góður.

Rannveig H, 21.11.2008 kl. 11:28

9 Smámynd: Skattborgari

Takk fyrir það ég held að þú þurfir kannski að fá þér sterkari gleraugu.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 21.11.2008 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband